morgunbladid
Vallanes er verðlagt á tæpan milljarð kr.

„Búskapur hér hefur verið ævintýri. Mér finnst gaman að rækta og starf 47 ára hefur gert eyðijörð að kostabúi. Nú, þegar ég er orðinn sjötugur, er góður tími til að hægja ferðina og eiga tímann fram undan sem frjáls maður,“ segir Eymundur Magnússon á Vallanesi á Fljótsdalshéraði.