ruv
„Okkur er ekki að takast að bæta lífskjör með viðlíka hraða og áður fyrr“
By Fréttastofa RÚV
Landsframleiðsla á hvern landsmann hefur staðið í stað síðustu sjö ár. „Það merkir það að okkur er ekki að takast að bæta lífskjör með viðlíka hraða og við gerðum hérna áður fyrr,“ segir Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins. Hann segir fjölmarga þætti útskýra þetta. Í nýrri greiningu fara SI yfir þá og með hvaða hætti sé hugsanlega hægt að snúa þróuninni við. „Við bendum sérstaklega á að þeir þættir sem skýra ólíka samkeppnisstöðu og ólíka þróun í landsframleiðslu á mann milli...