ruv
Dularfulls andláts kínversks leikara minnst við Sæbraut
By Fréttastofa RÚV
Bekkur við göngustíg við Sæbraut í Reykjavík nálægt Höfða er orðinn að minningarbekk um kínverskan söngvara og leikara sem lést í fyrra. Yu Menglong, sem einnig var kallaður Alan Yu, lést í september eftir fall úr fjölbýlishúsi í Peking. Lögreglan þar í landi tilkynnti að andlát Yu hefði verið slys eða sjálfsvíg og að Yu hefði verið undir áhrifum. Hún útilokaði að nokkuð saknæmt hefði gerst. Útskýringar og umfjöllun um dauðsfallið vöktu hins vegar tortryggni netverja, samkvæmt miðlinum Foreig...