ruv
Vegglistaverkið úr Tónabíói komið í leitirnar
By Fréttastofa RÚV
Leitin að glötuðu vegglistaverki úr Tónabíó, sem hvarf undir sprunguviðgerðir fyrir fjölda ára, vakti töluverð viðbrögð í Facebook-hópnum Gamlar ljósmyndir. Sigurður Snorrason, eigandi Reykjavík Bruggfélags, birti ljósmynd af vegglistaverki í hópnum fyrir helgi. Á myndinni mátti þó aðeins sjá um helming verksins, þar sem Pepsi Max-sjálfsali hylur restina, og óskaði Sigurður því eftir ljósmynd af öllu vegglistaverkinu. Vegglistaverkið er nú fundið. Þó nokkrir tjáðu sig í athugasemdum við færs...