ruv
Stormur, ófærð og erfið akstursskilyrði
By Fréttastofa RÚV
Allhvöss eða hvöss norðaustanátt verður í dag og víða stormur norðvestantil og við suðausturströndina, samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. Veðurfræðingur Vegagerðarinnar varar við norðaustan stórhríð á Vestfjörðum með tilheyrandi ófærð. Þá varar hann við erfiðum akstursskilyrðum og blindu í hríð á utanverðum Tröllaskaga, og á fjallvegum á Austfjörðum, svo sem í Fagradal og á Fjarðarheiði, eftir hádegi og fram á nótt. Snarpar vindhviður, um 35 metrar á sekúndu, í Öræfum í...