ruv
Lifandi fjörudoppa fannst í fyrsta sinn á Íslandi
By Fréttastofa RÚV
Fjörudoppu, tegund af kuðungi, rak nýlega á fjörur líffræðings í Gróttu á Seltjarnarnesi. Þetta er í fyrsta sinn sem slík finnst á lífi hér á landi. Fjörudoppa er kuðungur, náskyld þangdoppu og klettadoppu. Svanhildur Egilsdóttir, líffræðingur og ljósmyndari, var í óðaönn að undirbúa fjörudag í Gróttu og við leit að sjávarfangi til að sýna áhugasömum varð forvitnilegur kuðungur á vegi hennar. „Svo er ég að róta í þanginu og þá allt í einu dettur þessi kuðungur fyrir framan mig og ég kannaðist...