PERSPECTA

News from every angle

ruv

Vesturbæjarvíðirinn snýr aftur til upprunans: „Hann er kominn heim“

By Fréttastofa RÚV

Snemma á síðustu öld skaut upp kollinum víðitegund í Vesturbæ Reykjavíkur af svo miklum krafti að vexti hennar var líkt við lygasögu. Talið er að saga vesturbæjarvíðis (salix x smithiana) á Íslandi hafi hafist 1910 þegar Jón Eyvindsson, kaupmaður og garðunnandi, bjó að Stýrimannastíg 9. Hann pantaði haustlauka frá Þýskalandi og þeir bárust í tágakörfu sem var fléttuð úr víðiteinungum. Ísleifur sonur Jóns á að hafa tekið eftir því að líf var enn í sumum teinungunum. Hann setti einn niður og ú...