ruv
Klerkastjórnin stendur með pálmann í höndunum
By Fréttastofa RÚV
Vopnahlé er í gildi á milli Bandaríkjanna og Írans en útlit er fyrir að frekari átök brjótist út að mati Magnúsar Þorkels Bernharðssonar, prófessors í nútímasögu Mið-Austurlanda. „Stríðið er að stigmagnast. Þá verður þetta alvarlegra eftir því sem það magnast ef það eru ekki skýrar útgönguleiðir. Núna eru engar augljósar útgönguleiðir hjá Bandaríkjunum,“ segir hann. Samningar gætu verið stórsigur fyrir Írana Ýmislegt er undir í samningaviðræðum ríkjanna tveggja en ekki er auðséð hvernig þau g...