PERSPECTA

News from every angle

ruv

Allt það helsta: Nýja-Sjáland – Belgía

By Fréttastofa RÚV

Það vantaði ekki mörkin í leik Nýja-Sjálands og Belgíu í nótt. Leandro Trossard skoraði fyrsta mark Belgíu á 28. mínútu og bætti svo öðru við á þeirri 50. Kevin de Bruyne kom Belgum í 3-0 á 66. mínútu. Elijah Just kom Nýsjálendingum á blað með marki á 84. mínútu og staðan þá orðin 3-1. Belgar bættu þá bara í og Romelo Lukaku skoraði fjórða mark þeirra á 86. mínútu. Alexis Saelemaekers kom boltanum í netið á 4. mínútu uppbótartímans. Lokatölur 5-1 fyrir Belgum.