ruv
Fyrirtæki Quang Lé komið í flutningabransann
By Fréttastofa RÚV
Eignarhaldsfélag í eigu víetnamska viðskiptamannsins Quang Lé býður upp á flutningaþjónustu. Quang Lé rak fjölda veitingastaða í Reykjavík og hefur verið til rannsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu fyrir meint mansal. Fjöldi meintra brotaþola er meira en 30, segir Gunnar Axel Davíðsson lögreglumaður sem stýrir rannsókninni. Fyrirtækið heitir NQ Moving og býður upp á þjónustu flutningsmanna sem hlaða og afferma flutningabíla. Hægt er að panta einn flutningsmann eða tvo og bifreið með. ...