ruv
Bjóða upp á soðin slög á Matarmarkaði: „Krakkarnir eru alveg vitlausir í þetta“
By Fréttastofa RÚV
Smáframleiðendur, bændur og sjómenn af öllu landinu kynna afurðir sínar á Matarmarkaði Íslands sem hófst í Hörpu í dag. Þar má meðal annars finna ýmsar vörur úr hunangi, handgerð páskaegg og þurrkað hrossakjöt. „Við erum að fá svona 40 til 50 framleiðendur af öllu landinu sem eru að selja allt milli himins og jarðar,“ segir Hlédís Sveinsdóttir, viðburðarstjóri. „Það er mikið um sérvöru. Á markaðinum getur þú fundið vörur sem þú finnur hvergi annars staðar, bæði árstíðabundnar og líka það er v...