PERSPECTA

News from every angle

ruv

Rúmlega fimmtíu ára gamalt hitamet slegið

By Fréttastofa RÚV

Rúmlega fimmtíu ára gamalt hitamet var slegið í Danmörku nú í hádeginu. Hiti mældist 36,6 stig á H.C. Andersen flugvellinum norður af Óðinsvéum. Hitabylgja hefur leikið íbúa víða í Evrópu grátt á síðustu dögum og hitamet fallið víða, en þau hafa flest verið fyrir júnímánuð, því mestur hiti mælist yfirleitt í júlí eða ágúst. Hlýjasta júnínótt frá upphafi mælinga Nú er um 34 stiga hita í Kaupmannahöfn en þar hefur verið mjög hlýtt allan sólarhringinn. Á eyjunni Fanø í Norðursjó undan ströndum...