ruv
Kátir krakkar tóku kisuna og slönguna á Alþjóðlega dansdeginum
By Fréttastofa RÚV
Dansinn dunaði dátt við taktfasta tóna í Hörpunni fyrr í dag, þar sem haldið var upp á Alþjóðlega dansdaginn. Börn á öllum aldri og foreldrar þeirra fjölmenntu í sannkallaðri dansveislu þar sem þátttakendur fengu kennslu í Dansi ársins sem saminn var í tilefni dagsins. Félag íslenskra listdansara, Dansverkstæðið, Íslenski dansflokkurinn og List fyrir alla standa að deginum, sem er ætlað að dreifa dansgleði vítt og breitt um landið. „Deginum er fagnað út um allan heim og við erum að reyna að v...