ruv
Fjöldi fólks fastur í verslunarmiðstöð eftir jarðskjálfta
By Fréttastofa RÚV
Jarðskjálfti af stærðinni 7,1 reið yfir Kyushu, þriðju stærstu eyju Japans, upp úr klukkan 16 á staðartíma – snemma í morgun að íslenskum tíma. Kyushu-eyja er sú syðsta og vestlægasta af fjórum höfuðeyjum Japans. Þar búa rúmlega 12 milljónir manna. Kumamoto-hérað eyjunnar varð einna verst út úr skjálftanum í morgun. Önnur hæð verslunarmiðstöðvar hrundi í bænum Kashima. Í tilkynningu slökkviliðsins í Kashima segir að fjöldi fólks sé fastur í rústunum. Upplýsingar um ástand fólksins liggja ekk...