ruv
Gotta-rennibraut lokað vegna slysahættu
By Fréttastofa RÚV
Gotta-rennibrautinni í sundlauginni á Selfossi hefur verið lokað tímabundið vegna slysahættu. Í tilkynningu frá Sveitafélaginu Árborg kemur fram að ákvörðunin sé tekin þar sem börn hafi slasast í rennibrautinni. Hún verði því lokuð meðan farið er yfir öryggismál og leitað lausna til að tryggja örugga notkun til framtíðar. Margir bæjarbúar kveðja sér hljóðs í athugasemdum við tilkynningu bæjarins á Facebook. Segja margir að lokunin sé löngu tímabær; rennibrautin sé slysagildra. Gotta-rennibrau...