PERSPECTA

News from every angle

ruv

Stangarbærinn minnir á gróðurhús

By Fréttastofa RÚV

Óvenju gróðursælt er inni í bænum Stöng í Þjórsárdal en gróður þrífst þar vel vegna hönnunar á yfirbyggingu bæjarins. Uggi Ævarsson minjavörður Suðurlands segir að líkja mætti Stöng við gróðurhús en óvelkominn gróður hefur sprottið upp víðs vegar um bæinn. Gróðurinn er þó ekki kominn til að vera. „Nei, gróðurinn vill Minjastofnun ekki,“ segir Uggi. Flestum er eflaust kunnugt um Stangarbæinn en hann er einn þekktasti bær landsins frá þjóðveldisöld. Árið 2024 var opnuð ný yfirbygging yfir bæinn...