ruv
Allt það helsta: Úrúgvæ – Spánn
By Fréttastofa RÚV
Það var ekki mikið um færi í leiknum. Úrúgvæjar komu tveimur skotum á rammann en Spánverjar aðeins einu. Úr því kom mark frá Álex Baena á 42. mínútu. Fleiri urðu mörkin ekki en skömmu áður en flautað var til leiksloka fékk Agustin Canobbio beint rautt spjald eftir að hann tæklaði Pau Cubarsi harkalega.