PERSPECTA

News from every angle

ruv

Trump segir herkví um Íran geta varað í marga mánuði til viðbótar

By Fréttastofa RÚV

Olíuverð hækkaði eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði á fundi með stjórnendum olíufyrirtækja að herkví Bandaríkjanna um Íran gæti staðið í nokkra mánuði. Þetta hefur AFP-fréttaveitan eftir embættismanni sem krefst nafnleyndar og að Trump hafi bætt við að herkvíin hefði meiri og þyngri áhrif á efnahagslíf Írana en sprengjuárásir. Hann hafi jafnframt greint frá þeim leiðum sem stjórnvöld hygðust grípa til svo minnka mætti áhrif olíuskorts á bandarískan almenning. „Þeir eru að kafna ...