PERSPECTA

News from every angle

ruv

Mjög mikill eldur en allir heilir eftir eldsvoða á hafi

By Fréttastofa RÚV

„Þetta var mjög mikill eldur á mjög skömmum tíma og mikill reykur sem barst um skipið,“ segir Theodór Elvar Haraldsson, skipstjóri á Barða. Eldur kom upp í vélarrúmi skipsins undan ströndum Færeyja í gær með fimm manns um borð. Theodór útskýrir að skipið hafi verið í vélarupptekt í Þórshöfn. „Við vorum búnir að fara í fyrradag í prufusiglingu þar sem allt reyndist í góðu lagi.“ Skipið lagði af stað heim til Íslands í gær og hafði siglt í um fjóra tíma þegar áhöfnin varð vör við eld í vélarrúm...