ruv
Risa dróni ber áburð á golfvöllinn í Þorlákshöfn
By Fréttastofa RÚV
Stór og mikill dróni gegnir nú því hlutverki á golfvellinum í Þorlákshöfn að bera áburð á völlinn, ýmist í kornaformi eða fljótandi formi. Dróninn er engin smásmíði, hann tekur sig á loft við vallarsvæðið og fer svo yfir allan völlinn til að bera á hann. Chris Elrick, sem er frá Skotlandi, sér um að stjórna og fljúga drónanum. Vallarstjórinn er hæstánægður með drónann og segir stofnkostnað við hann mun lægri en í tilfelli sérstakra úðunarbíla áburðar, sem flestir stærri golfklúbbar hafa keypt...