ruv
Oddvitaskipti hjá Framsókn í Garðabæ: „Það er bara einhvers konar klíka“
By Fréttastofa RÚV
Brynja Dan Gunnarsdóttir, oddviti Framsóknarflokksins í Garðabæ, hefur sagt sig úr flokknum eftir að ljóst varð að hún fengi ekki oddvitasætið fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Hún sakar uppstillinganefnd um klíkuskap og ófagleg vinnubrögð. „Það var umsóknarfrestur til 1. febrúar og ég sendi inn í aðdragandanum að ég hefði áhuga á því að leiða listann áfram. Við náðum síðast inn manni í bæjarstjórn eftir 12 ára hlé, þannig það var svona ánægjulegt og við unnum góða vinnu í Garðabænum. Þ...