ruv
Snjóflóð féll yfir veg í Ólafsfirði
By Fréttastofa RÚV
Snjóflóð féll úr Ósbrekkufjalli í Ólafsfirði í nótt. Flóðið féll ekki nálægt byggð, en fór yfir veg og út í sjó. Magni Hreinn Jónsson, ofanflóðasérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir flóðið hafa verið nokkuð stórt. „Það fór út í sjó en á þekktum stað, þar sem svona í gegnum tíðina farið nokkuð reglulega flóð út í sjó,“ segir Magni. Óvissustig er í gildi á Norðurlandi vegna snjóflóðahættu. Stórt flóð féll úr Selskál í Hvennaeyrarhnúki skammt frá byggð á Siglufirði í gær og þar var einn bær...