PERSPECTA

News from every angle

ruv

Forseti Serbíu hyggst segja af sér innan nokkurra vikna

By Fréttastofa RÚV

Aleksandar Vučić, forseti Serbíu, hefur sagst ætla að segja af sér innan nokkurra vikna. Þessu greindi hann frá þegar hann ávarpaði stuðningsmenn sína á samkomu í Belgrad, höfuðborg Serbíu, fyrr í dag. „Ég verð forseti í aðeins nokkrar vikur og síðan mun ég segja af mér,“ sagði hann. Seinna kjörtímabili Vučić átti að ljúka í maí 2027. Vučić hefur gegnt embætti forseta Serbíu frá árinu 2017. Áður hafði hann verið forsætisráðherra frá árinu 2014. Mikið hefur verið um mótmæli í landinu síðustu v...