ruv
Jarðskjálfti við Landmannalaugar
By Fréttastofa RÚV
Jarðskjálfti af stærðinni 2,9 reið yfir Torfajökulssvæðið rétt vestan við Landmannalaugar laust fyrir klukkan fimm í dag. Eftiskjálfti af svipaðri stærð reið yfir stuttu seinna. Skjálftinn og eftirskjálftinn fundust vel á Friðlandi að Fjallabaki. Svæðið er þekkt jarðskjálftasvæði og ekki er óalgengt að skjálftar af svipaðri stærð verði á svæðinu. RÚV / Kristinn Gauti Gunnarsson