ruv
Icelandair kaupir sætin sér – röng uppsetning á sætum hefur engin áhrif
By Fréttastofa RÚV
Bilanir í sætum Boeing 737-MAX flugvéla hafa ekki áhrif á vélar Icelandair. Flugfélagið er með 21 MAX-vél í sínum flota. Samkvæmt upplýsingum frá flugfélaginu voru vélarnar keyptar af Boeing án sæta sem síðan voru keypt af ítölskum sætaframleiðanda. „Þetta var gert af rekstrarlegum ástæðum auk þess sem þau sæti sem valin voru þóttu passa betur við staðla félagsins um þjónustu og farþegaupplifun,“ segir í svari Icelandair. Þar segir að Icelandair hafi í mörgum tilfellum keypt sæti í flugvélar ...