ruv
Grande leikin grátt af tölvuþrjótum
By Fréttastofa RÚV
Poppstjarnan Ariana Grande hefur höfðað mál gegn tveimur tölvuþrjótum sem hún segir hafa lekið óútgefinni tónlist og myndskeiðum í hennar eigu. Í síðasta mánuði krafðist Grande þess að Hvíta húsið hætti að nota tónlist hennar til að kynna stefnu Bandaríkjaforseta í innflytjendamálum. Grande, sem er ein vinsælasta söngkona heims, segir tölvuþrjóta hafa komist inn í tölvur samstarfsfólks hennar og þannig haft af henni efni. Efnið hafi síðan verið selt á myrkravefnum fyrir háar fjárhæðir. Samkvæ...