PERSPECTA

News from every angle

ruv

Rannsaka hnífaárás í Lundúnum sem hryðjuverk

By Fréttastofa RÚV

Lundúnalögreglan rannsakar hnífstunguárás, þar sem tveir menn voru stungnir á götu úti í Golders Green í norðurhluta Lundúna, sem hryðjuverk. Mennirnir, sem eru 76 og 34 ára gamlir, eru gyðingar. Þeir voru fluttur á sjúkrahús og eru í stöðugu ástandi. Árásarmaðurinn, sem er 45 ára, var yfirbugaður og handtekinn á vettvangi. Hann er grunaður um tilraun til manndráps. Lögregla segir manninn einnig hafa reynt að stinga lögreglumenn sem handtóku hann en þeir hafi sloppið ómeiddir. Maðurinn hefur ...