PERSPECTA

News from every angle

ruv

Íbúi í nágrenni slökkti eld nálægt Víðistaðaskóla

By Fréttastofa RÚV

Þrír slökkvibílar sinntu útkalli vegna minniháttar elds í nágrenni við Víðistaðaskóla í Hafnarfirði en sneru við áður en þeir komu á vettvang. Eldurinn kviknaði í grindverki við skólann en upptök eldsins eru ekki vituð. Þetta staðfestir varðstjóri slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu. Íbúi í nágrenninu slökkti eldinn með garðslöngu og afþakkaði aðstoð slökkviliðs. Fréttin var uppfærð.