ruv
Fjaðrir, fiskroð og steinar á útskriftarsýningu fatahönnunarnema
By Fréttastofa RÚV
Færri komust að en vildu á tískusýningu útskriftarnema í fatahönnun við Listaháskóla Íslands í síðustu viku þar sem nemendur kynntu lokaverkefni sín. Efnisval nemenda er fjölbreytt í ár. Kristrún Rut H. Antonsdóttir sótti innblástur til nátttrölla í sinni hönnun og notast meðal annars við ull, fiskileður og steina. Stella Michiko Sigrún Delli Zuani lagði áherslu á náttúruleg efni. Í hennar hönnun koma meðal annars við sögu fjaðrir stokkandar og álftar. Almenningi gefst kostur á að kynna sér ú...