ruv
Segir Ísland njóta kostanna en nú eigi að innleiða gallana
By Fréttastofa RÚV
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins segir blasa við átök um framtíð Íslands og fullveldi eftir að lögð fram þingsályktunartillaga um atkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið. Flokksráðsfundur Miðflokksins er haldinn í Hofi á Akureyri í dag. Ræðu sína á fundinum lagði Sigmundur að mestu undir Evrópumál. Hann sagði mikilvægt að Miðflokkurinn verði leiðandi í að takast á við það sem hann kallar blekkingarleik ríkisstjórnarinnar. „Slagurinn hefst núna, þ...