ruv
16 ára hlaut lífstíðardóm fyrir skotárás
By Fréttastofa RÚV
16 ára drengur sem myrti fjóra í skotárás í framhaldsskóla í Georgíu í Bandaríkjunum árið 2024 var dæmdur í lífstíðarfangelsi í gær án möguleika á reynslulausn. Drengurinn, Colt Gray, var 14 ára þegar hann gerði skotárás í Apalachee-framhaldsskólanum í bænum Winder og myrti tvo 14 ára nema og tvo kennara við skólann, auk þess sem hann særði níu aðra. Gray hafði fengið riffil í jólagjöf frá föður sínum árið áður. Faðir hans Colin Gray var sakfelldur í mars á þessu ári fyrir manndráp og manndrá...