PERSPECTA

News from every angle

ruv

Forsetahjónin mæta í afmælishátíðarhöld Svíakonungs

By Fréttastofa RÚV

Halla Tómasdóttir forseti og Björn Skúlason, maki hennar, halda til Svíþjóðar í dag til að taka þátt í hátíðarhöldum á morgun vegna afmælis Svíakonungs. Karl Gústaf verður áttræður á morgun. Hann hefur verið konungur síðan 1973 og er valdatíð hans sú næstlengsta í sögu landsins. Halla og Björn taka þátt í hátíðarmessu í Slottskyrkan á morgun. Að henni lokinni verður afmælisdagskránni haldið áfram í konungshöllinni. Síðdegis býður borgarráð Stokkhólms til hádegisverðar. Afmælishátíðinni lýkur ...