ruv
Tindastóll hélt sér á lífi
By Fréttastofa RÚV
Basile var öflugur með Tindastóli í kvöld að venju.Mummi Lú Tindastóll vann Stjörnuna í kvöld í þriðja leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmóts karla í körfubolta, 103-88. Þar með minnkuðu Skagfirðingar muninn í einvíginu í 2-1 í unnum leikjum en vinna þarf þrjá leiki til að komast í úrslit. Minnst einn leikur bætist því við rimmu liðanna en þau mætast næst í Ásgarði í Garðabæ á sunnudagskvöld. Vinni Stjarnan þá er einvíginu lokið, en takist Tindastóli að vinna annan leikinn í röð yrði oddale...