ruv
Kongómenn áfram í 32-liða úrslit
By Fréttastofa RÚV
Landslið Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó er komið áfram í 32-liða úrslit eftir sigur liðsins 3-1 á Úsbekistan í nótt. Fyrsta mark leiksins kom á 10. mínútu þegar Eldor Shomurodov skoraði fyrsta og eina mark Úsbeka í leiknum. Það var þó nokkur bið eftir markaregni Kongómanna. Yoane Wissa skoraði fyrir Lýðstjórnarlýðveldið Kongó á 68. mínútu, Fiston Mayele kom með annað mark þeirra um tíu mínútum síðar og Wissa skoraði svo sitt annað mark, á 91. mínútu. Wissa var jafnframt valinn maður leiksins. ...