PERSPECTA

News from every angle

ruv

Tekinn á 144 kílómetra hraða innan höfuðborgarsvæðisins

By Fréttastofa RÚV

Lögregluþjónn úr umferðardeild á mótórhjóli.Ruv.is / Anton Brink Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sektaði nokkra ökumenn fyrir akstur langt yfir leyfilegum hámarkshraða í kvöld og nótt. Lögregluþjónar á stöð 2, sem sinnir verkefnum í Hafnarfirði og Garðabæ, stöðvuðu bílstjóra sem ók á 144 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 80. Annar ók á 108 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 60. Í austurhluta umdæmisins voru tveir ökumenn teknir á yfir 120 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 80.