PERSPECTA

News from every angle

ruv

Einn gistir fangageymslu grunaður um líkamsárás í miðbæ Akureyrar

By Fréttastofa RÚV

Lögreglustöðin á Akureyri.RÚV / Kristófer Óli Birkisson Einn var handtekinn grunaður um líkamsárás í miðbæ Akureyrar í nótt. Hann gistir fangageymslu og skýrsla verður tekin af honum í dag. Sá sem varð fyrir árásinn var fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar en áverkar hans eru ekki taldir alvarlegir, segir Kári Erlingsson, varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra. Hann segir að fjölmennt hafi verið í bænum í nótt en að skemmtanahald hafi að mestu farið vel fram.