ruv
Líkur á að samningur verði fullkláraður á næsta sólarhringnum
By Fréttastofa RÚV
Líkur eru á að Bandaríkin og Íran skrifi undir samning á næsta sólarhringnum, frá þessu greindi forsætisráðherra Pakistans nú skömmu fyrir fréttir. Ísraelsher hefur haldið áfram árásum á Líbanon í dag. Fimm hið minnsta hafa verið drepin í árásum Ísraela í Suður-Líbanon í morgun. Ísraelsher hefur í dag skipað íbúum tuttugu bæja og þorpa að flýja norður, yfir ána Zahrani. Talið er að Líbanon sé hluti af friðarsamningi Írans og Bandaríkjanna sem er sagður svo gott sem tilbúinn. Stjórnvöld í Paki...