ruv
Liverpool missteig sig gegn Tottenham
By Fréttastofa RÚV
Alexis MacAllister niðurlútur eftir jöfnunarmark Tottenham.EPA / ADAM VAUGHAN Liverpool og Tottenham skildu jöfn í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta, 1-1. Dominik Szoboszlai kom heimamönnum í Liverpool yfir með marki úr aukaspyrnu á 18. mínútu. Allt leit út fyrir að stigin þrjú yrðu Liverpool manna en Richarlison jafnaði metin þegar klukkan sló 90 mínútur. Liverpool er með 49 stig í 5. sæti en Tottenham er í 30. sæti með 30 stig. Liðið er stigi fyrir ofan fallsæti.