ruv
Fyrsti sigur ÍA og þriðja tap Stjörnunnar í röð
By Fréttastofa RÚV
Fjórir leikir eru á dagskrá Bestu deildar karla í dag og í kvöld og er tveimur þeirra lokið. Stjarnan komst yfir snemma gegn ÍA í Garðabænum. Benedikt Warén skoraði með laglegu skoti eftir snarpa sókn strax á 10. mínútu leiksins og var það eina mark fyrri hálfleiks. Skagamenn jöfnuðu svo metin eftir tæplega korters leik í síðari hálfleik. Markús Páll Ellertsson skoraði fyrir ÍA. Þegar um þrjár mínútur voru eftir slapp Viktor Jónsson svo í gegnum vörn Stjörnunnar. Hann lék á Árna Snæ Ólafsson ...