ruv
Mikil spenna fyrir tónleikum Laufeyjar: „Ég elska hana“
By Fréttastofa RÚV
Meiriháttar fólksflutningar áttu sér stað í Kópavogi fyrr í kvöld vegna stórtónleika skærustu stjörnu Íslands, Laufeyjar. Gestir voru ferjaðir með Strætó frá Smáralind að Kórnum, þar sem lokað hefur verið fyrir almenna umferð um svæðið meðan á tónleikunum stendur. Laufey heldur tvenna tónleika í Kórnum í Kópavogi um helgina, í kvöld og annað kvöld. Áhorfendur verða átta þúsund hvort kvöld. Tónleikagestir prúðbúnir með allskyns föndur í farteskinu Fólk tók að streyma í Kórinn á sjötta tímanum ...