ruv
Ástralir lögðu Tyrki 2–0
By Fréttastofa RÚV
Ástralir lögðu Tyrki 2–0 í D-riðli á HM í fótbolta í nótt. Nestory Irankunda kom Áströlum yfir á 27. mínútu og Connor Metcalfe tryggði sigurinn með marki á 75. mínútu. Tyrkir voru mun meira með boltann í leiknum, eða 72% og áttu hvorki meira né minna en 30 tilraunir að marki Ástrala. Þeir gulklæddu vörðust hins vegar vel.