ruv
Hamar bikarmeistari — gífurlegur hiti í Digranesi
By Fréttastofa RÚV
Hamar er bikarmeistari karla í blaki eftir hitaviðureign gegn Aftureldingu. Hamar vann 3-1 en tvær hrinur fóru í upphækkun. Þetta er fimmti bikarúrslitatitill Hamars en sá fyrsti kom árið 2021. Leikurinn var afar jafn strax frá upphafi og ljóst í hvað stefndi. Staðan var 5-5 eftir fyrstu mínúturnar. Afturelding náði þriggja stiga forskoti, 8-11. Hvergerðingar virkuðu ósáttir með sinn leik á þessum kafla um miðja fyrstu hrinuna. Afturelding komst í 9-15 og náði að verjast smössum Kristjáns gí...