
ruv12m ago
Þingmenn ræða fangelsismál og þjóðaratkvæðagreiðslu
Fyrri umræðu um þingsályktunartillögu ríkisstjórnarinnar vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-viðræður verður haldið áfram á Alþingi í dag. Þingfundur hefst klukkan þrjú og eru þrír liðir á dagskrá.
Fundurinn hefst á óundirbúnum fyrirspurnum þar sem átta ráðherrar verða til svara. Því næst tekur við sérstök umræða um fangelsismál að beiðni Ásu Berglindar Ingadóttur, þingmanns Samfylkingarinnar, þar sem Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra verður til andsvara.
Þriðji liðurinn og lí...
ruv1h ago
Hvar á Duplantis heima í umræðunni um þá bestu í sögunni?
Sænski stangarstökkvarinn Armand Duplantis setti sitt fimmtánda heimsmet í stangarstökki á fimmtudag. En hversu miklir eru yfirburðirnir? Er hægt að bera hann saman við aðra kappa?
Sérfræðingurinn Sigurbjörn Árni Ásgrímsson fór yfir málið. Viðtalið og umfjöllunina má sjá hér að neðan.
Sænski hástökkvarinn Mondo Duplantis setti enn eitt heimsmetið nýverið og er í fantaformi fyrir HM innanhúss. Þetta var hans 15. heimsmet, en hvernig metum við árangurinn? Sigurbjörn Árni Arngrímsson fór yfir má...
ruv2h ago
Hættuástandi lýst yfir vegna eldsneytismengunar í Dniester-ánni
Stjórnvöld í Moldóvu hafa lýst yfir 15 daga hættuástandi á vatnasvæðinu í og við Dniester-ánni í Moldóvu vegna eldsneytismengunar. Talið er að eldsneyti hafi lekið í ánna þegar Rússar gerðu árásir á Dniester-vatnsaflsvirkjunina í Úkraínu 7. mars.
Stjórnvöld í Úkraínu greindu fyrst frá menguninni þremur dögum síðar, þegar hennar varð vart nærri þorpinu Lyadova í Úkraínu. Mengunin barst með Dniester-ánni áfram inn í Moldóvu.
Yfirvöld þar í landi hafa komið upp hreinsibúnaði og gefið út viðvaran...
ruv7h ago
Vill að NATO-þjóðir aðstoði Bandaríkin í Íran
Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að framtíð Atlantshafsbandalagsins sé mjög slæm ef bandalagsþjóðir aðstoða ekki Bandaríkjamenn í Íran. Bandaríkjaforseti lét þessi ummæli falla í viðtali við dagblaðið The Financial Times.
Trump sagði að þar sem Bandaríkin hefðu aðstoðað Úkraínu í innrásarstríði Rússa í Úkraínu þá ætlist hann til að Evrópuríki aðstoði Bandaríkin við Hormússund. Trump sagði að ef það verða engin eða neikvæð viðbrögð bandalagsþjóða við þessari beiðni hans, þá verði það mjög ...
ruv9h ago
Eldur í íbúð í Úlfarsárdal
Eldurinn kom upp í íbúð í Friggjarbrunni.RÚV / Jón Þór Víglundsson
Eldur kom upp í íbúð í Friggjarbrunni í Úlfarsárdal í kvöld. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út kl. 21:12. Íbúar komust út af sjálfsdáðum og urðu engin slys á fólki.
Íbúðin er á efstu hæð í 3. hæða fjölbýlishúsi. Eldurinn náði ekki að breiðast út til annarra íbúða og voru því íbúar þeirra ekki í hættu.
Guðjón Ingason, varðstjóri Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, segir að slökkvistarf hafi gengið greiðlega. Eldsupptö...
ruv11h ago
Biður fólk um að fylgjast með og fara með gát
Hermann Karlsson, aðalvarðstjóri á Norðurlandi eystra, biður fólk um að fylgjast með stöðunni og fara með gát.
Stórt snjóflóð féll á varnargarð ofan við innsta hluta þéttbýlisins á Siglufirði í dag. Veðurstofan hefur lýst yfir óvissustigi fyrir norðan vegna snjóflóðahættu.
„Við höfum svo sem tilmæli til íbúa, sérstaklega á Siglufirði, að íbúar syðst og efst í Suðurgötu sérstaklega verði hlémeign í húsum og fylgist vel með.“
Hermann segir að ekki verði farið í rýmingar að svo stöddu en að fólk...
ruv13h ago
Margt jákvætt en ekki ráðist að rót vandans í fjölmiðlafrumvarpi
Tólf útgáfufélög, Blaðamannafélag Íslands og Öryrkjabandalag Íslands hafa skilað umsögnum um frumvarp til breytinga á lögum um fjölmiðla. Flestir eru sammála um að meira þurfi til að styrkja stöðu einkarekinna fjölmiðla. Umsagnarfrestur í samráðsgátt rennur út í dag.
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra kynnti aðgerðaáætlun til að styrkja stöðu einkarekinna fjölmiðla í desember. Meðal breytinga er að fjölmiðlar sem uppfylla skilyrði um fréttaþjónustu í almannaþágu á landsvísu geta sótt ...
ruv15h ago
United vann Villa í slag um Meistaradeildina
Cunha hoppar á bak Sesko til að fagna marki þess síðarnefnda.EPA / GARY OAKLEY
Manchester United vann Aston Villa 3-1 í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta í dag. Liðin eru í harðri baráttu um Meistaradeildarsæti. United fór með sigrinum upp í 3. sæti með 54 stig en Aston Villa er í 5. sæti með 51 stig.
Markalaust var í hálfleik en Casemiro kom heimamönnum í United yfir á 53. mínútu. Ross Barkley jafnaði metin á 64. mínútu. Matheus Cunha kom svo United aftur yfir á 71. mínútu. Benjamin Sesko g...
ruv15h ago
Segir ýmsar rangfærslur í málflutningi Rammagerðarinnar
Forstjóri Isavia segir miður að forsvarsfólk Rammagerðarinnar hafi farið fram með rangfærslur í fjölmiðlum varðandi lokun verslana þeirra á Keflavíkurflugvelli um helgina. Isavia hafi unnið hörðum höndum að því að finna lausn svo Rammagerðin gæti haldið starfseminni áfram. Staðan sem uppi sé komin sé vegna þeirra ákvarðana sem þau hafi tekið sjálf í sínum rekstri.
Aðgerðir Isavia valdið hræðslu meðal starfsfólks
Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, hefur svarað gagnrýni Lydíu Kims, framkv...
ruv17h ago
Forsætisráðherra segir Íslendinga óhrædda andspænis róti í alþjóðakerfinu
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir marga þakka fyrir þá forystu sem hún segir að Kanada hafi sýnt á alþjóðasviðinu, á tímum þar sem mikið rót hefur verið á þeim vettvangi.
Hún segir Ísland hafa miklar áhyggjur af Grænlandi en sé tilbúið að nýta sér þá auknu athygli sem heimsbyggðin sýnir Norðurslóðum í kjölfarið á ásælni Bandaríkjaforseta í landið.
Þetta sagði hún á blaðamannafundi með forsætisráðherrum Noregs, Danmerkur, Kanada, Finnlands og Svíþjóðar í Osló í dag. Þar fundaði þe...
ruv18h ago
Árekstur og bílar utan vegar á Hellisheiði og vegurinn lokaður í báðar áttir
Vegurinn um Hellisheiði er lokaður vegna umferðaróhappa. Minnst tveir bílar lentu saman og fleiri bílar enduðu utan vegar skammt frá brekkunni við skíðaskálann í Hveradölum. Mjög slæm akstursskilyrði eru á heiðinni, hálka og skafrenningur.
Lögregla er komin á vettvang og vegurinn verður lokaður á meðan unnið er þar. Magnús Ragnarsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, segir að enn sé ekki vitað um alvarleg slys á fólki.
Hægt er að komast um Þrenglsin en mikill skafrenningur er á sv...
ruv19h ago
Finnst eins og íslensk náttúra sé hluti af sér
Pólski rithöfundurinn Maó Alheimsdóttir hlaut Fjöruverðlaunin fyrir ljóðabók sína Hvalbak í byrjun mánaðar. Hún skrifar á íslensku og hefur sent frá sér tvær ljóðabækur og eina skáldsögu, og er fyrsti höfundurinn af erlendum uppruna sem skrifar og gefur út skáldsögu á íslensku.
Maó býr á Íslandi og starfar meðal annars sem fjallaleiðsögumaður og má sjá ást hennar á náttúrunni í skáldskap hennar. Egill Helgason ræddi við Maó í Kiljunni á RÚV.
Þarf alltaf að útskýra sjálfa sig og ákvað að gera ...
ruv20h ago
Hilmar Örn stórbætti eigið met og tryggði sig á EM
Hilmar Örn var í góðu formi á mótinu á Kýpur í dag og átti góða kastseríu. Lengsta kast hans kom í fjórðu tilraun þegar hann kastaði 78,03 metra. Það er bæting á Íslandsmeti hans um 93 sentímetra, en gamla metið hafði staðið frá 2020.
Þetta kast skilaði honum í þriðja sætið í mjög sterkri keppni á Kýpur. Sigurvegari varð Volodymyr Myslyvcuk frá Tékklandi sem kastaði 80,69 metra sem er lengsta kast ársins í heiminum.
Árangur Hilmars Arnar skilaði honum líka örugglega inn á Evrópumótið í frjáls...
ruv21h ago
Einn gistir fangageymslu grunaður um líkamsárás í miðbæ Akureyrar
Lögreglustöðin á Akureyri.RÚV / Kristófer Óli Birkisson
Einn var handtekinn grunaður um líkamsárás í miðbæ Akureyrar í nótt. Hann gistir fangageymslu og skýrsla verður tekin af honum í dag.
Sá sem varð fyrir árásinn var fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar en áverkar hans eru ekki taldir alvarlegir, segir Kári Erlingsson, varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra.
Hann segir að fjölmennt hafi verið í bænum í nótt en að skemmtanahald hafi að mestu farið vel fram.
ruv23h ago
Snjóflóð féll yfir veg í Ólafsfirði
Snjóflóð féll úr Ósbrekkufjalli í Ólafsfirði í nótt. Flóðið féll ekki nálægt byggð, en fór yfir veg og út í sjó. Magni Hreinn Jónsson, ofanflóðasérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir flóðið hafa verið nokkuð stórt.
„Það fór út í sjó en á þekktum stað, þar sem svona í gegnum tíðina farið nokkuð reglulega flóð út í sjó,“ segir Magni.
Óvissustig er í gildi á Norðurlandi vegna snjóflóðahættu. Stórt flóð féll úr Selskál í Hvennaeyrarhnúki skammt frá byggð á Siglufirði í gær og þar var einn bær...
ruv1d ago
Lítið ljós í þakglugga
Breski herinn hélt fjölmargar æfinga á Austurlandi á meðan hernáminu stóð í seinni heimstyrjöldinni. Þar á meðal skotæfingar á Héraði og þjálfun í vetrarferðum á fjöllum. Fjallað er um tvo atburði tengda breska hernámsliðinu á Austurlandi í þáttunum Sprengjan sem sprakk á Rás 1.
Baldur Davíðsson gleymir aldrei 15 ára afmælisdeginum, 20. janúar 1942. Faðir hans var símstöðvarstjóri á Eskifirði. Baldur, sem er 99 ára, var á símstöðinni þegar 60 breskir hermenn lentu í hrakningum á leið sinni fr...
ruv1d ago
Stjórnvöld keppast við að endurheimta ímynd sína sem öruggt ríki
Stjórnvöld í Sameinuðu arabísku furstadæmunum keppast við að endurheimta ímynd sína sem öruggt ríki eftir miklar árásir Írana síðan átök hófust í Mið-Austurlöndum. Ríkið hefur markaðssett sig sem eitt öruggasta ríki Mið-Austurlanda og ferðaþjónusta er ein mikilvægasta atvinnugrein landsins.
Íranir hafa skotið yfir 1.800 flugskeytum og drónum á borgir í Sameinuðu arabísku furstadæmunum en loftvarnarkerfi landsins hefur náð að stöðva flestar árásirnar. Myndskeið af árásunum komust í töluverða d...
ruv1d ago
Óvissustigi lýst yfir vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum
Óvissustigi vegna snjóflóðahættu hefur verið lýst yfir á norðanverðum Vestfjörðum frá miðnætti í kvöld samkvæmt tilkynningu á vef Veðurstofu Íslands. Þá verða nokkur atvinnuhúsnæði rýmd á Ísafirði í fyrramálið.
Vegagerðin hefur lýst yfir hættustigi á Súðavíkurhlíð og Flateyrarvegi frá miðnætti og verður vegunum þá lokað vegna snjóflóðahættu á vegum.
Nokkur minni snjóflóð hafa fallið, m.a. á vegi, en ekkert mjög stórt. Mikill nýr snjór er á svæðinu eftir norðan- og norðvestan veður. Aðfaranótt...
ruv1d ago
Þremur verslunum Rammagerðarinnar í Leifsstöð lokað í nótt
Isavia hefur lokað öllum þremur verslunum Rammagerðarinnar í flugstöð Leifs Eiríkssonar. Rammagerðin hefur starfað í flugstöðinni í rúm fimmtíu ár. Störf hátt í þrjátíu einstaklinga eru nú í húfi.
„Starfsfólki okkar í Leifsstöð var verulega brugðið þegar Isavia kom og lokaði. Aðgerðin olli hræðslu meðal starfsfólks enda er þetta alvarleg og ólögleg aðgerð,“ segir Lydía Kims framkvæmdastjóri Rammagerðarinnar.
Lydía segir í tilkynningu að Rammagerðin hafi fengið samþykkt greiðsluskjól hjá Hérað...
ruv1d ago
Listi Framsóknar í Norðurþingi samþykktur
Aðsend
Listi Framsóknarmanna í Norðurþingi var samþykktur á félagsfundi Framsóknarfélags Þingeyinga í dag.
Nýr oddviti listans er Eysteinn Heiðar Kristjánsson, verkefnastjóri sjúkraflutninga við Heilbrigðisstofnun Norðurlands. Í ávarpi á fundinum hvatti hann félagsfólk áfram í aðdraganda kosninga.
Hér má sjá hverjir skipa efstu sex sæti listans:
Eysteinn Heiðar Kristjánsson, verkefnastjóri.
Bylgja Steingrímsdóttir, sjúkraliði.
Kristinn Rúnar Tryggvason, bóndi og atvinnurekandi.
Elísabet...
ruv1h ago
Um 350 manns í fjöldahjálparstöðvum
ruv1h ago
Dregur úr vindi og úrkomu
Mesta óveður gærdagsins er gengið yfir og heldur dregur úr vindi og úrkomu fyrir norðan. Enn er þó hvöss norðan- og norðaustanátt.
Norðan og norðaustan átta til fimmtán í dag. Él norðantil, en víða léttskýjað sunnan heiða. Vaxandi norðaustanátt í kvöld. Norðan tíu til átján á morgun, en norðvestlægari norðaustan- og austanlands seinnipartinn. Víða snjókoma fyrir norðan, en þurrt og bjart veður um landið sunnanvert. Hiti yfirleitt 0 til 5 stig að deginum.
ruv4h ago
Ástralir og Japanir ætla ekki að senda herskip til Hormússunds
Samgöngumálaráðherra Ástralíu, Catherine King, sagði í viðtali við ástralska ríkissjónvarpið ABC að Ástralir ætli ekki senda herskip til Hormússunds. Fréttaveitan AFP greinir frá.
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur óskað eftir því að þjóðir sem flytja inn olíu frá Persaflóa sendi herskip til að aðstoða við að opna Hormússund og tryggja öryggi ferða olíuflutningaskipa um sundið. King segir að áströlsk stjórnvöld hafi ekki verið sérstaklega beðin um að senda skip en þau ætli ekki að leggja ti...
ruv7h ago
Garðabæjarlistinn í Garðabæ liggur fyrir
Garðabæjarlistinn var kynntur í Sveinatungu á Garðatorgi í Garðabæ í gær. Í tilkynningu frá flokknum segir að flokkurinn sé óháður flokkur með skýrt erindi. Flokkurinn starfi fyrir Garðbæinga og leggi áherslu á jafnt aðgengi fyrir alla íbúa að lífsgæðum sveitarfélagsins. Flokkurinn á tvo bæjarfulltrúa í núverandi bæjarstjórn.
ruv10h ago
„Þannig að þetta er svona úr einum öfga í annan“
Hrafn Guðmundsson veðurfræðingur segir að veðrið fari að skána með kvöldinu og í nótt. Veðrið gangi þó ekki alveg niður og búast má við norðanhríð, sérstaklega á Vestfjörðum á morgun.
Hættustig er vegna snjóflóðahættu á Ísafirði og óvissustig á norðanverðum Vestfjörðum.
Viðloðandi ofankoma verður víða á Norðurlandi næstu daga.
Hrafn Guðmundsson veðurfræðingur segir að veðrið skáni með kvöldinu og í nótt. Aðfaranótt miðvikudags má búast við því að veðrið gangi almennilega niður, spáð er asahl...
ruv12h ago
„Fólk elskar bara Mario“
Aðdáendur Super Mario Bros-tölvuleikjaheimsins komu saman í rafíþróttamiðstöðinni Next Level Gaming í Egilshöll í Grafarvogi í dag, á lokadegi tölvuleikjahátíðarinnar Mario-Con.
Fyrsta útgáfa leiksins Super Mario Bros kom á markað fyrir rúmum 40 árum og hefur hann notið sívaxandi vinsælda um allan heim.
Hátíðin hófst á þriðjudag og voru gestir á öllum aldri. Þar var meðal annars boðið upp á jazz-tónleika, bingó auk þess sem keppt var í fjölda tölvuleikja.
Ákveðin nostalgía sem fylgi því að sp...
ruv13h ago
Liverpool missteig sig gegn Tottenham
Alexis MacAllister niðurlútur eftir jöfnunarmark Tottenham.EPA / ADAM VAUGHAN
Liverpool og Tottenham skildu jöfn í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta, 1-1.
Dominik Szoboszlai kom heimamönnum í Liverpool yfir með marki úr aukaspyrnu á 18. mínútu.
Allt leit út fyrir að stigin þrjú yrðu Liverpool manna en Richarlison jafnaði metin þegar klukkan sló 90 mínútur.
Liverpool er með 49 stig í 5. sæti en Tottenham er í 30. sæti með 30 stig. Liðið er stigi fyrir ofan fallsæti.
ruv15h ago
Persnesk kvikmyndasaga: Íranska nýbylgjan
Kolbeinn Rastrick skrifar:
Kvikmyndasaga Írans hefst árið 1900 þegar þáverandi konungur Persíu, Mozaffar ad-Din Shah Qajar, lét hirðljósmyndara sinn, Mirza Ebrahim Khan Akkas Bashi, kaupa Gaumont-kvikmyndavél og kvikmynda ferð sína til Evrópu. Fyrsta kvikmyndahúsið var svo opnað í Íran árið 1904 í Teheran, tveimur árum áður en fyrsta bíóið hér á landi, Gamla bíó, var opnað. Þótt margir opinberir viðburðir hafi verið kvikmyndaðir og eitthvað framleitt af stuttum fréttakvikmyndum, tók kvikmynda...
ruv15h ago
Rammagerðin beri ábyrgð á stöðunni sem uppi er komin
Forstjóri Isavia segir miður að forsvarsfólk Rammagerðarinnar hafi farið fram með rangfærslur í fjölmiðlum varðandi lokun verslana þeirra á Keflavíkurflugvelli um helgina. Isavia hafi unnið hörðum höndum að því að finna lausn svo Rammagerðin gæti haldið starfseminni áfram. Staðan sem uppi sé komin sé vegna þeirra ákvarðana sem þau hafi tekið sjálf í sínum rekstri.
Aðgerðir Isavia valdið hræðslu meðal starfsfólks
Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, hefur svarað gagnrýni Lydíu Kims, framkv...
ruv18h ago
Snjóflóð, ófærð og erfið akstursskilyrði í norðaustan hríðarveðri
ruv18h ago
Hellisheiði lokuð vegna umferðaróhapps
Umferðaróhapp varð á Hellisheiði fyrir skömmu og er vegurinn lokaður. Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar.
Samkvæmt upplýsingum fréttastofu eru viðbragðsaðilar á leið á staðinn. Hált er á veginum og skafrenningur.
Fréttin verður uppfærð.
ruv19h ago
Laufey heillaði alla upp úr skónum
Laufey heillaði alla upp úr skónum á tónleikum sínum í gærkvöldi segir Ísleifur Þórhallsson framkvæmdastjóri Senu Life. Skipulagðar sætaferðir frá Kórnum í Smáralind gengu vel og um klukkutíma tók að tæma húsið. Undirbúningur er þegar hafinn í Kórnum fyrir seinni tónleika Laufeyjar í kvöld.
„Maður hefur bara sjaldan upplifað aðra eins stemningu og allt gekk vel og fólk fór bara út með tár í augunum sýndist mér í stórum stíl,“ segir Ísleifur, „það eitthvað svo mikil ást á Laufeyju og hún er or...
ruv20h ago
Grænlenskur stjórnmálamaður segir hamlandi að Ísland stýri flugumferð yfir Grænlandi
Grænlenskur stjórnmálamaður segir Grænlendinga fara á mis við töluverðar tekjur með því að stýra ekki flugumferð yfir landinu. Fyrrverandi flugmálastjóri segir dæmið ekki vera svo einfalt því tekjur af flugumferðastjórn skili ekki miklu beint í ríkiskassann.
Ísland hefur sinnt flugleiðsöguþjónustu yfir Norður-Atlantshafi allt frá lokum seinni heimsstyrjaldar og Nuuk-flugstjórnarsvæðið er um 70% af heildarflugstjórnarsvæðinu.
Vittus Qujaukitsoq, fyrrverandi fjármálaráðherra grænlensku landstj...
ruv21h ago
Snjóflóð féllu ofan við Ísafjörð og í Ólafsfirði
Þrjú snjóflóð féllu úr Seljalandshlíð og eitt úr Gleiðarhjalla ofan við Ísafjörð í nótt. Flóðin féllu ofan við atvinnusvæði sem rýmt var í morgun. Stórt flóð féll úr Ósbrekkufjalli í Ólafsfirði, yfir veg og út í sjó.
„Þetta voru mest flóð bara á þekktum stöðum og fyrir ofan þetta svæði sem var rýmt í morgun. Þau voru ekki mjög stór en eitt fór samt yfir veginn sem liggur upp á Seljalandsdal,“ segir Magni Hreinn Jónsson, ofanflóðasérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, um flóðin sem féllu ofan vi...
ruv23h ago
Bandaríkjaforseti vill erlend herskip bandaþjóða að Hormússundi
Donald Trump forseti Bandaríkjanna sagði í færslu á samfélagsmiðlinum Truth Social í gær að hann ætli að opna Hormússund bráðlega og að það verði öruggt og frjálst. Hann vonast til þess að Kína, Frakkland, Japan, Suður-Kórea og Bretland sendi herskip í Hormússund, svo Íranir geti ekki ógnað flutningaskipum sem eiga leið um sundið.
Þangað til muni Bandaríkjaher gera miklar árásir við strandlengju Írans og skjóta á írönsk skip. Enn sem komið er hafa ríkisstjórnir þessara ríkja ekki tjáð sig um ...
ruv1d ago
Keppnum í Bahrein og Sádí Arabíu aflýst
Formúla 1-keppninni í Jeddah í Sádí Arabíu 20. apríl 2025.EPA / ALI HAIDER
Keppnum í Formúlu 1-kappakstrinum í Bahrein og Sádí Arabíu hefur verið aflýst vegna ótryggs öryggisástands í Mið-Austurlöndum. Keppnirnar áttu að fara fram 12. apríl í Manama í Bahrein og í Jeddah í Sádí Arabíu 19. apríl næstkomandi.
Þessi ákvörðun mun hafa þó nokkur áhrif á tekjur keppnisliða og Formúlu 1-kappakstursins, en löndin greiða yfir 100 milljónir breskra punda fyrir að halda keppnirnar. Greiðslurnar skiptast...
ruv1d ago
Ís brotnaði undan tjaldi skíðafólks á Helsingjabotni
Þýskt par komst í hann krappan í Helsingjabotni í vikunni. Finnska ríkisútvarpið YLE greinir frá.
Fólkið hafði farið á skíðum frá Oulu í Finnlandi og ætlaði sér að skíða yfir frosinn Helsingjabotn yfir til Luleå í Svíþjóð. Þau gistu í tjaldi á leiðinni en um nóttina tók ísinn að brotna upp og þau misstu nær allan búnaðinn sinn í hafið. Þau náðu að koma sér yfir á tryggari ís og senda út neyðarkall.
Björgunarflugvél fann þau nokkrum klukkustundum síðar þrátt fyrir að aðstæður væru krefjandi ti...
ruv1d ago
Ágúst leiðir lista Samfélagsins í Norðurþingi
Aðsend
Rúnar Traustason, rekstrarstjóri Íslandspósts á Húsavík og slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður leiðir M-lista Samfélagsins í Norðurþingi. Í tilkynningu segir að Rúnar hafi verið virkur í ýmsu félagslífi og tómstundum í sveitarfélaginu.
Áki Hauksson núverandi bæjarfulltúi tilkynnti fyrr í mánuðinu að hann hyggðist ekki sækjast eftir áframhaldandi setu í sveitarstjórn Norðurþings. Áki mun þó áfram koma til með að starfa með lista Samfélagsins og miðla sinni þekkingu áfram.
M – Listi Sa...
ruv1d ago
SR sópaði Akureyringum og er Íslandsmeistari
Skautafélag Reykjavík er Íslandsmeistari karla í íshokkí eftir að sópað Skautafélagi Akureyrar í úrslitaeinvíginu. SR vann einvígið 3-0 og leik kvöldsins 3-2.
SA sópaði SR í úrslitaeinvíginu fyrir ári síðan þannig að Reykvíkingar náðu í kvöld fram hefndum.
Viðtöl og myndefni úr leiknum birtast í kvöldfréttum sunnudagskvöld.
Mikil spenna var allan fjórða leikhlutann en SR komst í 3-0 eftir 27 mínútna leik. Alex Máni Sveinsson kom heimamönnum yfir í Skautahöllinni í Laugardal á 12. mínútu. Axel...
ruv1d ago
Loka Flateyrarveg og veginum um Súðavíkurhlíð á miðnætti vegna snjóflóðahættu
Vegagerðin hefur lýst yfir óvissustigi á Flateyrarveg og veginum um Súðavíkurhlíð á Vestfjörðum vegna snjóflóðahættu. Með tilliti til veðurspár verður vegunum lokað á miðnætti í kvöld, aðfaranótt sunnudags.
Gul viðvörðun tekur gildi á Vestfjörðum klukkan tvö í nótt vegna norðaustanstorms og verður viðvörunin í gildi til níu annað kvöld. Spáð er 15 til 23 metrum á sekúndu, snjókomu eða skafrenningi með lélegu skyggni og versnandi færð.
Snjóflóð féll á veginn um Súðavíkurhlíð snemma í gærmorgun...
ruv1h ago
Á fjórða hundrað í fjöldahjálparstöðvum
ruv1h ago
One Battle After Another valin besta kvikmyndin
Kvikmyndin One Battle After Another, fékk flest verðlaun eða sex talsins, á Óskarverðlaunahátíðinni sem fram fór í Los Angeles í nótt að íslenskum tíma. Kvikmyndin meðal annars verðlaunuð sem besta kvikmynd ársins og fékk einnig verðlaun fyrir bestu leikstjórn ársins.
Kvikmyndin Sinners fékk alls fjögur verðlaun en myndin var tilnefnd til 16 verðlauna, sem er sögulegt met í fjölda tilnefninga. Autumn Durald Arkapaw, skráði sig á spjöld sögunnar en hún er fyrsta konan til að vinna Óskarsverðla...
ruv5h ago
Undurfagur ævintýraheimur Laufeyjar
Tónlistarkonan Laufey Lín Jónsdóttir heillaði aðdáendur sína á öllum aldri á tvennum tónleikum í Kórnum um helgina. Sviðsmyndin á tónleikunum minnti á ævintýraheim og tónleikarnir voru sannkölluð veisla fyrir augu og eyru, eins og sjá má á meðfylgjandi myndum sem Arnór Fannar Rúnarsson, tökumaður á RÚV, tók á tónleikunum í gærkvöld.
Alls mættu um átta þúsund gestir hvort kvöldið. Tónleikarnir eru með stærstu tónleikum sem haldnir hafa verið í Kórnum, en átta gámar af búnaði voru fluttir til l...
ruv9h ago
Eldur í íbúð í Grafarholti
Eldurinn kom upp í íbúð í Friggjarbrunni.RÚV / Jón Þór Víglundsson
Eldur kom upp í íbúð í Friggjarbrunni í Grafarholti í kvöld. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út kl. 21:12. Íbúar komust út af sjálfsdáðum og urðu engin slys á fólki.
Íbúðin er á efstu hæð í 3. hæða fjölbýlishúsi. Eldurinn náði ekki að breiðast út til annarra íbúða og voru því íbúar þeirra ekki í hættu.
Guðjón Ingason, varðstjóri Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, segir að slökkvistarf hafi gengið greiðlega. Eldsupptö...
ruv10h ago
„Þannig að þetta er svona úr einum öfgum í aðrar“
Hrafn Guðmundsson veðurfræðingur segir að veðrið fari að skána með kvöldinu og í nótt. Veðrið gangi þó ekki alveg niður og búast má við norðanhríð, sérstaklega á Vestfjörðum á morgun.
Hættustig er vegna snjóflóðahættu á Ísafirði og óvissustig á norðanverðum Vestfjörðum.
Viðloðandi ofankoma verður víða á Norðurlandi næstu daga.
Hrafn Guðmundsson veðurfræðingur segir að veðrið skáni með kvöldinu og í nótt. Aðfaranótt miðvikudags má búast við því að veðrið gangi almennilega niður, spáð er asahl...
ruv12h ago
Segir írönsk stjórnvöld aldrei hafa farið fram á vopnahlé
Utanríkisráðherra Írans, Abbas Araghchi, segir stjórnvöld þar aldrei hafa farið fram á vopnahlé eða viðræður um slíkt.
Ummælin eru viðbrögð við orðum Donalds Trump Bandaríkjaforseta sem sagði að Íranar vildu komast að samkomulagi sem Bandaríkin hefðu ekki enn getað fallist á, því að skilmálarnir væru ekki orðnir ásættanlegir.
Araghchi segir að Íranar sjái enga ástæðu til að ræða við Bandaríkjamenn, stríðið sé háð að frumkvæði þeirra og Íranar haldi áfram að verjast.
„Við sjáum enga þörf á...
ruv14h ago
Guðný og Þórbergur báru af á Smáþjóðamóti
Smáþjóðamótið í ólympískum lyftingum var haldið í Garðabæ í gær. Keppendur Íslands í kvennaflokki unnu þar stærstu afrekin og var Guðný Björk Stefánsdóttir stigahæst.
Þetta er í 47. sinn sem mótið er haldið en þar mætast keppendur frá smáþjóðum Evrópu. Keppnin fór fram í Miðgarði, lyftingaraðstöðu Stjörnunnar í Garðabæ.
Hér að neðan má sjá helstu atvik mótsins.
Guðný Björk Stefánsdóttir var stigahæst allra á Smáþjóðamóti í ólympískum lyftingum sem haldið var hér á landi um helgina.
Guðný Björ...
ruv15h ago
Segir markmið Bandaríkjanna og Ísraels í Íran ekki þau sömu
Magnús Þorkell Bernharðsson, prófessor í sögu Mið-Austurlanda, segir að stríðið í heimshlutanum muni stigmagnast enn frekar ef til landhernaðar kemur. Það verði mjög blóðugt ef þeir fimm þúsund bandarísku landgönguliðar, sem sagðir eru vera á leið til Mið-Austurlanda, verður stefnt í landhernað í Íran.
Þó það gerist ekki mun stríðið þó stigmagnast enn frekar að hans mati, ekki í síst í ljósi alls þess fjölda ríkja og vígahópa sem eiga beina og óbeina aðkomu að því.
„Ef fleiri ríki eins og Suð...
ruv15h ago
Rammagerðin beri ábyrgð á stöðunni sem upp er komin
Forstjóri Isavia segir miður að forsvarsfólk Rammagerðarinnar hafi farið fram með rangfærslur í fjölmiðlum varðandi lokun verslana þeirra á Keflavíkurflugvelli um helgina. Isavia hafi unnið hörðum höndum að því að finna lausn svo Rammagerðin gæti haldið starfseminni áfram. Staðan sem uppi sé komin sé vegna þeirra ákvarðana sem Rammagerðin hafi tekið sjálf í sínum rekstri.
Aðgerðir Isavia valdið hræðslu meðal starfsfólks
Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, hefur svarað gagnrýni Lydíu Kims...
ruv18h ago
Tveir tveggja bíla árekstrar og bílar utan vegar á Hellisheiði
Vegurinn um Hellisheiði var lokaður í á aðra klukkustund vegna umferðaróhappa og fjölda bifreiða sem lentu utan vegar.
Tveir tveggja bíla árekstrar urðu skammt frá skíðaskálanum í Hveradölum á öðrum tímanum, samkvæmt lögreglu, og fréttamaður RÚV sem er á vettvangi segist hafa séð minnst átta bíla utan vegar.
Magnús Ragnarsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, segir þrjá hafa verið flutta til skoðunar á sjúkrahús.
Hann segir björgunarsveitir mættar á staðinn til að aðstoða vegfare...
ruv19h ago
Nokkur smærri snjóflóð og rýmingar í gildi á Ísafirði og Siglufirði
Óvissustig vegna snjóflóðahættu er á Norðurlandi og norðanverðum Vestfjörðum og á Ísafirði er hættustig. Þar hafa nokkur atvinnuhús undir Seljalandshlíð verið rýmd, á reit níu – þar er meðal annars Netagerðin sem hýsir ýmsa atvinnu og listastarfsemi.
Til fjalla er spáð snjókomu segir á vef Veðurstofunnar og þar má búast við skafrenningi í dag og næstu daga því safna ætti snjó í upptakasvæði snjóflóða.
Nokkur snjóflóð hafa fallið í nótt og í morgun, úr Ósbrekkufjalli norðan Ólafsfjarðar, úr gi...
ruv20h ago
Björgunarsveitir stóðu í ströngu á Sandskeiði og Vestfjörðum
Björgunarsveitir á Vestfjörðum og Reykjavík voru stóran hluta nætur að aðstoða ferðalanga sem voru í vandræðum sökum slæmrar færðar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg.
Þar segir að á öðrum tímanum í nótt hafi Hjálparsveit skáta í Reykjavík verið send upp á Sandskeið til að aðstoða fjölda fólks sem lent hafði í vandræðum vegna slæmrar færðar og skyggnis. Þar stóðu bílar fastir frá Lækjarbotnum og austur fyrir afleggjarann upp í Bláfjöll.
Mikil hálka var á veginum...
ruv20h ago
Grænlenskur ráðherra segir hamlandi að Ísland stýri flugumferð yfir Grænlandi
Grænlenskur ráðherra segir Grænlendinga fara á mis við töluverðar tekjur með því að stýra ekki flugumferð yfir landinu. Fyrrverandi flugmálastjóri segir dæmið ekki vera svo einfalt því tekjur af flugumferðastjórn skili ekki miklu beint í ríkiskassann.
Ísland hefur sinnt flugleiðsöguþjónustu yfir Norður-Atlantshafi allt frá lokum seinni heimsstyrjaldar og Nuuk-flugstjórnarsvæðið er um 70% af heildarflugstjórnarsvæðinu.
Vittus Qujaukitsoq, fjármálaráðherra grænlensku landstjórnarinnar, telur fy...
ruv23h ago
Hótar fjölmiðlum að þeir geti misst útsendingarleyfi sín
Formaður eftirlitsnefndar alríkisfjarskipta í Bandaríkjunum og æðsti maður yfir net-, sjónvarps- og útvarpsmiðlum, Brendan Carr, segir að fjölmiðlar sem dreifi ósannindum og falsfréttum í umfjöllun miðlanna um stríðið í Mið-Austurlöndum eigi á hættu að missa útsendingarleyfi sín ef þeir hætta ekki að dreifa ósannindum og falsfréttum.
Í færslu sem hann birti á samfélagsmiðlinum X segir hann að lögin séu skýr. Fjölmiðlum beri að hafa hagsmuni almennings að leiðarljósi og að þeir miðlar sem það ...
ruv1d ago
Stormur, ófærð og erfið akstursskilyrði
Allhvöss eða hvöss norðaustanátt verður í dag og víða stormur norðvestantil og við suðausturströndina, samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. Veðurfræðingur Vegagerðarinnar varar við norðaustan stórhríð á Vestfjörðum með tilheyrandi ófærð.
Þá varar hann við erfiðum akstursskilyrðum og blindu í hríð á utanverðum Tröllaskaga, og á fjallvegum á Austfjörðum, svo sem í Fagradal og á Fjarðarheiði, eftir hádegi og fram á nótt. Snarpar vindhviður, um 35 metrar á sekúndu, í Öræfum í...
ruv1d ago
Þrjár landsliðskonur draga umsókn sína um hæli tilbaka
Íranska kvennalandsliðið í fótbolta á Asíumótinu í fótbolta 8. mars 2026.EPA / DAVE HUNT
Íþróttaráðuneyti Írans hefur staðfest að tvær íranskar fótboltakonur og ein kona úr þjálfarateymi liðsins, sem sóttu um stöðu flóttamanns í Ástralíu, hafi hætt við umsókn sína og ætli að snúa aftur til Írans.
Íranska kvennalandsliðið í fótbolta keppti á Asíumótinu í fótbolta í Ástralíu fyrir skömmu. Að lokinni keppni sóttu sex landsliðskonur og ein kona úr þjálfarateymi liðsins um stöðu flóttamanns í Ástr...
ruv1d ago
Dulkóðuð skilaboð talin hafa verið send á útsendara Írans utan Írans
Alríkisyfirvöld í Bandaríkjunum hleruðu dulkóðuð skilaboð sem talin eru koma frá Íran og gætu verið boðun til aðgerða til íranskra útsendara utan Írans. Alríkisyfirvöldin hafa sent viðvörun til lögregluyfirvalda, segir í frétt fjölmiðilsins ABC news.
Bráðabirgðaathugun leiddi í ljós að skilaboðin hafi verið send til margra landa, stuttu eftir að æðstiklerkur Írans, Ayatollah Ali Khamenei, var drepinn í árás Bandaríkjanna og Ísrael 28. febrúar. Skilaboðin voru ætluð leynilegum viðtakendum sem ...
ruv1d ago
Rúnar leiðir lista Samfélagsins í Norðurþingi
Aðsend
Rúnar Traustason, rekstrarstjóri Íslandspósts á Húsavík og slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður leiðir M-lista Samfélagsins í Norðurþingi. Í tilkynningu segir að Rúnar hafi verið virkur í ýmsu félagslífi og tómstundum í sveitarfélaginu.
Áki Hauksson núverandi bæjarfulltúi tilkynnti fyrr í mánuðinu að hann hyggðist ekki sækjast eftir áframhaldandi setu í sveitarstjórn Norðurþings. Áki mun þó áfram koma til með að starfa með lista Samfélagsins og miðla sinni þekkingu áfram.
M – Listi Sam...
ruv1d ago
Mikil spenna fyrir tónleikum Laufeyjar: „Ég elska hana“
Meiriháttar fólksflutningar áttu sér stað í Kópavogi fyrr í kvöld vegna stórtónleika skærustu stjörnu Íslands, Laufeyjar. Gestir voru ferjaðir með Strætó frá Smáralind að Kórnum, þar sem lokað hefur verið fyrir almenna umferð um svæðið meðan á tónleikunum stendur.
Laufey heldur tvenna tónleika í Kórnum í Kópavogi um helgina, í kvöld og annað kvöld. Áhorfendur verða átta þúsund hvort kvöld.
Tónleikagestir prúðbúnir með allskyns föndur í farteskinu
Fólk tók að streyma í Kórinn á sjötta tímanum ...
ruv1d ago
Loka veginum um Súðavíkurhlíð á miðnætti vegna snjóflóðahættu
Vegagerðin hefur lýst yfir óvissustigi á veginum um Súðavíkurhlíð á Vestfjörðum vegna snjóflóðahættu. Með tilliti til veðurspár verður veginum lokað á miðnætti í kvöld, aðfaranótt sunnudags.
Gul viðvörðun tekur gildi á Vestfjörðum klukkan tvö í nótt vegna norðaustanstorms og verður viðvörunin í gildi til níu annað kvöld. Spáð er 15 til 23 metrum á sekúndu, snjókomu eða skafrenningi með lélegu skyggni og versnandi færð.
Snjóflóð féll á veginn um Súðavíkurhlíð snemma í gærmorgun.Davíð Pierre Mi...